Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vill sjá NATO 3.0

Elbridge Colby lét þessi orð falla á lokuðum fundi með varnarmálaráðherrum hinna Atlantshafsríkjanna, samkvæmt því sem Politico hefur eftir heimildarmönnum. Colby er harðlínumaður og aðalhöfundur nýrrar varnarstefnu Bandaríkjanna, sem vakti nokkra athygli í upphafi árs.„Vatnaskilin eru að baki og við ættum að fagna því,“ hefur Politico eftir Colby en segir hann hafa verið mildari í málflutningi sínum en ráðamenn vestra hafa verið undanfarið. Hann undirstrikaði engu að síður að framvegis yrði áhersla Bandaríkjanna annars staðar en í Evrópu. Vernd vesturhvels jarðar væri í forgangi sem og fælingarmáttur í Kyrrahafinu. Þar lægju hagsmunir Bandaríkjanna öðru fremur.Þó yrði Evrópu enn um hríð haldið undir verndarskildi kjarnorkuvopnabúrs Bandaríkjanna og Evrópuríkjum útveguð vopn sem þau skorti
Vill sjá NATO 3.0

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta