Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Þetta er svo galið ástand“

„Þarna liggur fólk sólarhringunum saman og það nýjasta sem maður er að heyra er að fólk liggi þarna í upp undir tíu daga, á þessari bráðamóttöku sem hefur að ég held þrjár sturtur. Það eru þrjú klósett þar sem hægt er að fara með sjúkling í hjólastól eða rúmi. Þetta eru veikustu sjúklingar spítalans. Þetta er svo galið ástand,“ segir Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hún og Anna Guðrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku, voru gestir í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.Anna Guðrún bendir á að þetta sé stærsta bráðamóttaka landsins, hún sinni landinu og miðunum. „Við þurfum alltaf að hafa viðbragðið í lagi, við þurfum að geta tekið á móti þessu óvænta sem eru slysin. Við þurfum að vera alltaf tilbúin og við erum það ekki.“
„Þetta er svo galið ástand“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta