Það kom til snarpra orðaskipta og upp úr sauð á einum tímapunkti þegar Pam Bondi, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, svaraði fyrir meðferð ráðuneytisins á Epstein-skjölunum í gær. Hópur þolenda Epsteins var viðstaddur þegar dómsmálanefnd fulltrúaþingsins yfirheyrði Bondi.Í lok janúar birti bandaríska dómsmálaráðuneytið þrjár milljónir nýrra skjala tengdum kynferðisbrotamanninum Jeffrey-Epstein. Þingmenn demókrata hafa sagt valdamiklum og nafntoguðum mönnum hlíft með yfirstrikunum á meðan nöfn þolenda séu birt.Hér að neðan gefur að líta nokkur augnablik frá yfirheyrslunni á Bondi.Hækkaður rómur og fúkyrði á víxl einkenndu yfirheyrslu dómsmálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á Pam Bondi dómsmálaráðherra í gær. Þingmenn spurðu Bondi út í meðferð dómsmálaráðuneytisins á Epstein-skjölunum.T