Þrír starfsmenn Háskólans á Bifröst keyptu fasteignir af háskólanum við götuna Jaðarsel árið 2024.Margrét Jónsdóttir Njarðvík, þáverandi rektor, keypti 110 fm þriggja herbergja parhús á einni hæð á rúmar 36 milljónir.Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsson kennari keypti 83,7 fermetra, þriggja herbergja íbúð á rúmar 26 milljónir króna.Helena Dögg Haraldsdóttir prófstjóri keypti 110 fermetra, fjögurra herbergja parhús á 33 milljónir.Þetta kemur fram í afsali fasteignanna. Samkvæmt ársreikningi Kiðár ehf., dótturfélags Háskólans á Bifröst, sem er skráð fyrir flestum fasteignum á svæðinu, voru fjórar íbúðir seldar árið 2024. Í rekstrarreikningi var tekjufærður söluhagnaður að fjárhæð 63 milljónir króna vegna eignasölunnar.Margrét Jónsdóttir Njarðvík var rektor Háskólans á Bifröst og einn þriggja stjó