Háskólaráð samþykkti á fundi sínum í dag hækkun skráningargjalds í Háskóla Íslands úr 75 þúsund krónum í hundrað þúsund krónur.Samkvæmt upplýsingum frá Birni Gíslasyni, á markaðs- og samskiptasviði háskólans, voru tveir fulltrúar sem greiddu atkvæði gegn tillögunni. Það voru fulltrúar stúdenta. Röskva stúdentahreyfing stóð fyrir mótmælum við upphaf fundar háskólaráðs.