Veiking Bandaríkjadals á liðnu ári hafði verulega neikvæð áhrif á afkomu Icelandair og skýrir að stórum hluta rekstrartap flugfélagsins þrátt fyrir ágætis tekjuvöxt og bata á fjórða ársfjórðungi, að sögn hlutabréfagreinanda. Verðmat á félaginu hækkar lítillega í nýrri greiningu en þar undirstrikað að ef stjórnendum á að takast að rétta við reksturinn þá nær ekkert svigrúm fyrir launahækkunum í Bandaríkjadollar.