Einungis 30 ökumenn virtu hámarkshraða þegar Lögreglan á Vesturlandi var við hraðamælingar á vinnusvæði Vegagerðarinnar í Norðurárdal við Bjarnadalsá í gær. 46 ökumenn hafi verið á svo miklum hraða að það kalli á ökuleyfissviptingu á staðnum. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar. Hámarkshraðinn á vinnusvæðinu var minnkaður úr 90 km/klst niður í 30 km/klst. Lögreglan mældi 295 bifreiðar með hraðamyndavélabíl. 265 óku yfir hámarkshraða, 169 voru yfir sektarmörkum og sá sem hraðast ók mældist á 116 kílómetra hraða. Lögreglan segir starfsmenn Vegagerðarinnar hafa verið í hættu vegna hraðakstursins.„Starfsmenn Vegagerðarinnar voru sannarlega í hættu vegna hraða margra ökumanna sem óku um vinnusvæðið,“ segir í færslu lögreglunnar á Vesturlandi á Facebook.RÚV / Alexander Kristjá