Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fullar endurbætur á Fjarðarheiði gætu kostað tæpa tíu milljarða

Verði ekki af Fjarðarheiðargöngum gæti þurft að ráðast í kostnaðarsamar endurbætur á veginum yfir heiðina ef hann ætti að uppfylla kröfur um stofnvegi í vegaskrá. Samkvæmt minnisblaði Vegagerðarinnar gætu þær gætu kostað allt að 9,5 milljarða króna. ERFIÐIR DAGAR Á HEIÐINNI UNDANFARIÐ OG VEGURINN ILLSÝNILEGUR Á KÖFLUM Yfir Fjarðarheiði fóru í fyrra 678 bílar á dag að jafnaði og spá gerir ráð fyrir að eftir fimm ár verði meðalumferðin komin í um 1100 bíla á dag. Þetta er fjallvegur með kröppum og bröttum beygjum, bæði Egilsstaðamegin og þar sem ekið er niður í Seyðisfjörð. Uppi á háheiðinni er líka langur og erfiður kafli, um 10 kílómetrar í mikilli hæð. Þar er veðravíti og stundum hríð þótt blíða sé niðri í byggð. Þó að heiðin teljist fær er stundum svo blint að bílstjórar þurfa að fikr
Fullar endurbætur á Fjarðarheiði gætu kostað tæpa tíu milljarða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta