Hópslagsmál brutust út á þinginu í Tyrklandi í gær. Þingmenn í stjórnarandstöðu reyndu að koma í veg fyrir að Akin Gurlek, nýr dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Erdogan, fengi að sverja embættiseið.Ekkert varð af því vegna uppþotsins, en Gurlek sór eið sinn síðar í hópi bandamanna.Mörg stór mál eru á dagskrá þingsins á næstunni og eru stólaskiptin í stjórn Receps Tayyips Erdogans sett í samhengi við það. Meðal annars er verið að undirbúa mögulegar stjórnarskrárbreytingar og friðarviðræður við Verkamannaflokk Kúrda, PKK, sem var lengi skilgreindur sem hryðjuverkasamtök en hefur nú lagt niður vopn.