Íslensk stjórnvöld ætla að verja átta milljónum bandaríkjadala, um milljarði króna, í vopnakaup fyrir Úkraínu. Þetta verður gert í gegnum sérstakt verkefni á vegum Atlantshafsbandalagsins, þar sem vopn eru keypt frá Bandaríkjunum og send til Úkraínu.Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra greindi frá þessu í viðtali við RÚV í dag, en hún sótti fund varnarmálaráðherra NATO-ríkjanna sem haldinn var í Brussel í morgun.Fjármagnið fer í gegnum verkefni á vegum NATO sem kallast PURL (Prioritised Ukraine Requirements List). Í gegnum þetta verkefni er miðað að því að uppfylla brýnar þarfir Úkraínumanna á herbúnaði og loftvörnum, með því að kaupa búnað frá Bandaríkjunum og senda þann búnað til Úkraínu.„Við erum auðvitað ekki að gera eins mikið og aðrar þjóðir, en við erum að uppfylla okkar