INSPECTOR SPACETIME – PEOPLE IN THE VIDEO People in the Video, nýjasta smáskífa Inspector Spacetime, býður hlustendur velkomna í skýjabólstrað popp-ferðalag. Undanfarið hefur þríeykið komið fram á erlendri grundu á tónleikum og tónlistarhátíðum víða um Evrópu. Á dögunum vakti óbein heimsókn til Bandaríkjanna athygli þegar lag Inspector Spacetime heyrðist óma í auglýsingu tæknirisans Apple. VALGEIR SKORRI – FRÝS/FLÝT Lagið frýs/flýt frá Valgeiri Skorra er fyrsta lag af plötu sem er vinnslu sem fær fljótlega að líta dagsins ljós. Texti lagsins flakkar í tíma og fjallar eins og svo margt um ástina, dauðann og eilífðina. Lagið kom út 6. febrúar og Valgeir Skorri samdi, tók upp og spilaði. UNDIRALDAN FIMMTUDAGINN 12. FEBRÚAR Það var komið víða við í Undiröldunni þessa vikuna og ný íslens