Giséle Pelicot segist ekki hafa þekkt sjálfa sig á myndum sem eiginmaður hennar tók af henni þegar hann veitti tugum manna aðgang til að nauðga henni á meðan hún var undir áhrifum lyfja. Þetta kemur fram í viðtali við Pelicot, því fyrsta sem hún veitir síðan fyrrverandi eiginmaður hennar var dæmdur í 20 ára fangelsi.Mál Pelicot vakti heimsathygli þegar það kom upp. Eiginmaður hennar, Dominique Pelicot, játaði að hafa gefið henni deifilyf, nauðgað henni og fengið tugi annarra manna til að gera það sama. Hann var dæmdur í 20 ára fangelsi í desember 2024. Fimmtíu aðrir menn hlutu dóm í málinu, frá þremur upp í fimmtíu ár.Brot Pelicot stóðu yfir í tæpan áratug á heimili þeirra hjóna í þorpinu Mazan í Provence-héraði í Frakklandi. Hann tók nauðganirnar upp og geymdi í tölvunni sinni.Pelicot ósk