Þremenningarnir sem voru hreinsaðir af meintum brotum á siðareglum Háskólans á Bifröst í síðustu viku hafa hótað að stefna skólanum fyrir dóm. Þau sendu háskólanum á Bifröst bréf þann 8. febrúar þar sem þau krefjast þess að fá upplýsingar um nafnlausu ábendinguna sem siðanefndarmálið gegn þeim byggir á. Þremenningarnir hóta því einnig að fara með málið til embættis umboðsmanna Alþingis.Þetta segir einn þremenninganna, Hanna Kristín Skaftadóttir: „Við vitum ekki hvaðan þessi nafnlausa ábending kemur. [...] Krafan gengur út á það að viljum að öllum gögnum og nafnleynd sé aflétt í okkar máli,“ segir hún.Í bréfinu, sem fréttastofa hefur undir höndum, segir orðrétt: „ Krafa okkar lýtur sérstaklega að afhendingu á afriti af þeirri „nafnlausu ábendingu“ sem rektor vísar til í málatilbúnaði sínum