Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tilkynna endalok stóraðgerða ICE í Minnesota

Stóraðgerðum innflytjendastofnunarinnar ICE og landamæravarða í Minnesota er lokið. Þetta tilkynnti Tom Homan, yfirmaður innflytjendamála í Trump-stjórninni, fyrir skemmstu.Homan sagði að vegna aðgerðanna væri Minnesota nú ekki eins mikill griðarstaður glæpamanna og áður var og aðgerðirnar í ríkinu því mjög árangursríkar. Homan kveðst hafa lagt til við Donald Trump Bandaríkjaforseta að ljúka aðgerðum í ríkinu og hann hafi verið samþykkur því.Homan kveðst ætla að verða áfram í Minnesota til að hafa yfirsýn með því þegar dregið verður úr aðgerðunum. Hann segir ICE munu áfram vera með viðveru í ríkinu, en þó í mun minna mæli.Á fimmta þúsund hafa verið handtekin í Minnesota síðan ákveðið var að senda tvö þúsund ICE liða og landamæraverði til ríkisins. Meðal þeirra eru börn og bandarískir ríkis
Tilkynna endalok stóraðgerða ICE í Minnesota

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta