„Grænlandsmálið endurspeglar þá óvissu sem nú er uppi í alþjóðakerfinu,“ segir Wilson Zhu, fjölmiðlaráðgjafi frá Kína sem hefur verið búsettur í Danmörku í mörg ár, í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að líkja megi deilunni við nokkurs konar álagspróf á alþjóðakerfið, ekki síst fyrir smá og meðalstór ríki.