Stuðningur við varnir Úkraínu er aðalmálið á fundi varnarmálaráðherra ríkja Atlantshafsbandalagsins í Brussel, daginn eftir harðar loftárásir í Úkraínu. Bresk stjórnvöld tilkynntu í morgun styrk upp á hálfan milljarð punda fyrir loftvarnir í Úkraínu.„Í dag mun ég staðfesta að Bretland ætlar að leggja aukalega fram hálfan milljarð punda í bráðnauðsynlegar loftvarnir í Úkraínu,“ sagði John Healy, varnarmálaráðherra Bretlands í morgun, áður en ráðherrafundurinn hófst. Bretar ætla að verja hluta þessarar upphæðar í kaup á bandarískum loftvarnakerfum, en ætla einnig að senda loftvarnaflaugar sem framleiddar eru í Belfast, að því fram kemur í fréttatilkynningu sem gefin var út í morgun.Yfirlýsing Healys setur tóninn fyrir þennan fund varnarmálaráðherranna hér í Brussel; fund sem haldinn er dagin