Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Nemendur mótmæltu hækkun skráningargjalda

Háskólanemar efndu til mótmæla við aðalbyggingu Háskóla Íslands í hádeginu þegar háskólaráð hóf fund sinn. Þar átti að taka fyrir hækkun skrásetningargjalda við skólann. Hámark skráningargjalda opinberu háskólanna er bundið í lög heimilaði Alþingi hækkun þeirra fyrir jól. Gjöldin eru 75 þúsund krónur og hafa verið óbreytt í tólf ár. Þau væru 120 þúsund krónur ef þau hefðu hækkað í takt við verðbólgu. Tillagan í dag hljóðar upp á hækkun í 100 þúsund krónur.Ármann Leifsson, formaður Röskvu, sagði í hádegisfréttum RÚV að skrásetningargjöld væru ekki eins og hvað annað og fylgdu ekki vísitölu neysluverðs. „Síðast þegar skrásetningargjöldin hækkuðu þá hækkuðu þau oft á stuttu tímabili. Við í Röskvu erum gríðarlega hrædd um að það muni gerast núna og þar með skerða aðgengi að HÍ líkt og er nú þe
Nemendur mótmæltu hækkun skráningargjalda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta