Bogi Ágústsson ræddi norræn málefni í Heimsglugga vikunnar á Morgunvakt Rásar 1 við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur. Þau tímamót verða í norskum stjórnmálum að Erna Solberg hættir sem formaður Høyre eftir 22 ár. Eftirmaður hennar verður Ine Eriksen Søreide, fyrrverandi utanríkis- og varnarmálaráðherra. Gildi og mikilvægi norrænnar samvinnu bar einnig á góma í tilefni af eldheitri hvatningu Bertel Haarder til ríkisstjórna norrænu ríkjanna að efla varnarsamvinnu. ÖFLUGAR STJÓRNMÁLAKONUR Tvær afar áberandi og öflugar stjórnmálakonur hafa gegnt embætti forsætisráðherra í Noregi á undanförnum áratugum. Þær voru á öndverðum meiði í stjórnmálum, Gro Harlem Brundtland var formaður Verkamannaflokksins og Erna Solberg formaður Høyre, norska íhaldsflokksins. Brundtland var f