Félagsdómur sýknaði Samtök atvinnulífsins í dag af kröfu Alþýðusambands Íslands fyrir hönd VR.VR taldi að hækka ætti launataxta um 0,58 prósent um áramót í samræmi við kauptaxta sem launa- og forsendunefnd viðsemjenda úrskurðaði um í mars í fyrra. Forsvarsmenn VR töldu að annars myndi kauptaxtaaukinn rýrna þannig að launafólk nyti hans ekki til fulls.Þessu höfnuðu Samtök atvinnulífsins og töldu sig hafa uppfyllt kjarasamninga að fullu.Félagsdómur sagði að ekki væri mælt fyrir um það í kjarasamningi að hækka ætti laun um áramót að teknu tilliti til kauptaxtaauka sem hefði þegar leitt til launahækkunar 1. apríl í fyrra. SA var því sýknað af kröfu ASÍ fyrir hönd VR.