Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Þið skuluð ekki senda peninga til Úkraínu“

Evrópuríkjum væri nær að hætta fjárhagsstuðningi við Úkraínu ef þau vilja örva hagvöxt. Þetta sagði Viktor Orban forsætisráðherra Ungverjalands á leið inn á fund með öðrum leiðtogum ESB-ríkja í morgun.„Ekki senda ykkar fjármuni til annarra ef þið þurfið þá til að bæta ykkar eigin samkeppnishæfni, þannig að þið skuluð ekki senda peninga til Úkraínu,“ sagði hann.Orban er nánasti bandamaður Vladimirs Pútíns Rússlandsforseta innan ESB og hefur stöðugt viðrað efasemdir sínar um stuðning við Úkraínu gegn innrás Rússa, sem hefur nú staðið í tæp fjögur ár.Í lok síðasta árs höfðu ESB og aðildarríki varið um 177 milljörðum evra til að styrkja varnir og efnahag Úkraínu frá innrásinni í febrúar 2022.Í gær samþykkti Evrópuþingið 90 milljarða evra lán til handa Úkraínu til næstu tveggja ára.
„Þið skuluð ekki senda peninga til Úkraínu“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta