Heilbrigðisráðherra tekur undir áhyggjur starfsfólks bráðamóttöku Landspítala um stöðuna á deildinni. Gera þyrfti ráðstafanir ef hópslys yrði.Starfsfólk bráðamóttöku sem er í fimm stéttarfélögum sendi frá sér ályktun eftir fund í gær þar sem staðan á deildinni var til umræðu. Þar kemur m.a. fram að öryggi sjúklinga og starfsfólks þar er ógnað á degi hverjum og hvorki hægt að tryggja þar sýkingavarnir, brunavarnir né persónuvernd.Alma Möller heilbrigðisráðherra sendi þáverandi heilbrigðisráðherra ítrekuð minnisblöð í landlæknistíð sinni þar sem meðal annars kom fram að ástandið væri grafalvarlegt, reglugerðir væru ekki uppfylltar.Til dæmis kom fram í minnisblaði árið 2018 að við þetta ástand yrði ekki unað, reglugerðir væru ekki uppfylltar og ástandið sagt grafalvarlegt. Árið 2020 var lýst