Rannsókn norsku efnahagsbrotadeildarinnar Økokrim á Thorbjørn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, er í fullum gangi og gerð var húsleit á minnsta kosti tveimur stöðum í morgun.Økokrim hóf rannsókn á Jagland í kjölfar þess að nafn hans birtist í Epstein-skjölunum og er hann grunaður um spillingu. Gerð var húsleit í íbúð hans í Ósló og eignum í Risør og Rauland. Verjandi Jagland segir húsleitina viðbúna og eðlilegan hluta af rannsókn sem þessari.Fjölmiðlar náðu tali af Jagland þegar hann yfirgaf íbúðina í Ósló í morgun. „Ég hef aðeins eitt að segja. Ég er afar ánægður með að málið sé að skýrast. Ég hef ekki meira að segja,“ sagði Jagland.Fréttin var uppfærð með nánari upplýsingum um húsleitina og viðbrögðum Jagland og verjanda hans.