Átján ára kona er grunuð um að hafa banað móður sinni og stjúpbróður ásamt fimm nemendum í gagnfræðaskóla og einum kennara í bænum Tumbler Ridge í Bresku Kólumbíu á þriðjudag. Kanadíska lögreglan birti nafn hennar í gær.Jesse Van Rootselaar svipti sig lífi og fannst látin á vettvangi. Lögreglan segist hvorki vita um tildrög né ástæðu árásarinnar en á síðustu árum hafi hún haft afskipti af Rootselaar vegna andlegrar heilsu hennar.Haft er eftir kanadísku lögreglunni að hún hafi fæðst drengur en hafið kynleiðréttingarferli fyrir sex árum.Lögreglan leiðrétti í gær upplýsingar um fjölda þeirra sem létu lífið. Upphaflega var talið að stúlka sem er lífshættulega særð hefði látist. Rootselaar er sögð hafa skotið móður sína og ellefu ára stjúpbróður til bana á heimili þeirra áður en hún fór í gagnf