Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Veðurstofan fékk dróna til að vakta hraun og kortleggja svæði

Veðurstofan hefur tekið tvo nýja dróna í notkun til að nota við vöktun og mælingar. Þá er hægt að nota í nákvæmar yfirborðsmælingar, til að kortleggja óaðgengileg og hættuleg svæði og til að fá skýra yfirsýn yfir aðstæður á vettvangi. Annar dróninn er með sérhæfða kortalagningarmyndavél með aðdráttarlinsu en hinn með litmyndavél og hitamyndavél. Hægt er að nota drónana til að vakta hraun og gera áhættumat á jarðhitasvæðum auk þess sem endurteknar mælingar geta sýnt breytingar á yfirborði og hitastigi.
Veðurstofan fékk dróna til að vakta hraun og kortleggja svæði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta