Áform í samgönguáætlun og aðgerðaáætlun til næstu fimm ára um að fresta framlögum til hafnaruppbyggingar í Þorlákshöfn koma verulega á óvart, segir Óskar Sveinn Friðriksson, forstjóri Smyril Line á Íslandi, í umsögn fyrirtækisins til Alþingis.Hann segir að fyrirhuguð frestun framlaga frá 2026 til 2029-2030 og lægri hlutur ríkisins í kostnaði sé stefnubreyting sem brjóti með alvarlegum hætti gegn réttmætum stuðningi stjórnvalda við uppbyggingu fullnægjandi hafnaraðstöðu.Framlög til uppbyggingar hafnaraðstöðu í Þorlákshöfn er annað tveggja atriða sem Smyril Line finnur að í samgönguáætlun. Hitt er að göng um Fjarðarheiði verði ekki að veruleika. Óskar Sveinn segir að lokanir vegarins hafi lengi skapað öryggisvandamál fyrir farþega og gert fyrirtækinu ómögulegt að halda uppi heilsárssiglingum