Halla Tómasdóttir forseti Íslands afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV í kvöld.Íslensku bókmenntaverðlaununum var komið á fót árið 1989 í tilefni af 100 ára afmæli Félags íslenskra bókaútgefenda. Verðlaunaféð er ein milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk og eru í boði Félags íslenskra bókaútgefenda. Verðlaunagripurinn Blængur, blásvartur hrafn steyptur í kopar, eftir myndlistarmanninn Matthías Rúnar Siguðrsson, var afhentur verðlaunahöfum Íslensku bókmenntaverðlaunanna í þriðja sinn. BLÓÐDROPINN Blóðdropann hlaut að þessu sinni Margrét Höskuldsdóttir fyrir bókina Lokar augum blám. Útgefandi er Vaka Helgafell.„Það er mikill heiður að hljóta þessi verðlaun og ég tek á móti þeim me