Erlendum ríkisborgara var vísað úr landi á föstudag vegna þjófnaðar í verslun í Reykjavík, degi eftir komuna til landsins. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var maðurinn á þrítugsaldri en þýfið fannst í fórum hans og við yfirheyrslu hjá lögreglu játaði maðurinn sök.Lögreglan telur tilgang ferðar mannsins til landsins hafa verið að stunda brotastarfsemi hérlendis.