Bandaríski leikarinn James Van Der Beek er látinn 48 ára að aldri eftir baráttu við krabbamein. Hann lætur eftir sig eiginkonu og sex börn.Van Der Beek var hvað þekktastur fyrir aðalhlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Dawson's Creek og kvikmyndinni Varsity Blues.Eiginkona hans, Kimberly Van Der Beek, greindi frá andlátinu í Instagram-færslu. Þar sagði hún eiginmann sinn hafa mætt sínum síðustu dögum með hugrekki, trú og reisn. Van Der Beek greindi sjálfur frá því í nóvember 2024 að hann hefði greinst með ristilkrabbamein.