Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans sem smitaðist af berklum segir atvikið hafa haft bæði andleg og líkamleg áhrif. Starfið sé hans ástríða en eitthvað verði að gera til að bæta starfsaðstæður. Formaður Félags hjúkrunarfræðinga kallar eftir aðgerðum strax.