Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ríður á að standa vörð um landsvæði NATO-ríkja í norðri

Norðurslóðir gegna sífellt mikilvægara hlutverki í sameiginlegum vörnum Atlantshafsbandalagsins, NATO, sagði Mark Rutte, framkvæmdastjóri bandalagsins, á fundi í Brussel í dag. Aðild Svíþjóðar og Finnlands frá 2022 hafi styrkt stöðu NATO á svæðinu. Engu að síður sé nauðsynlegt, í ljósi aukinna hernaðarumsvifa Rússlands og aukins áhuga Kína á norðurslóðum, að bandalagið láti meira til sín taka. Þess vegna hafi verkefninu Arctic Sentry verið hleypt af stokkunum í dag. Arctic Sentry, sem gæti útlagst „Varðstaða á norðurslóðum“, á einkum að efla árvekni, vöktun og eftirlit á svæðinu. Hún felur í sér aukna viðveru herskipa og eftirlitsflugvéla þótt ekki sé gert ráð fyrir að fjölga mannskap eða búnaði, heldur að nýtt verði betur en nú er gert.Rutte sagði að Arctic Sentry sameini allt það sem NAT
Ríður á að standa vörð um landsvæði NATO-ríkja í norðri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta