Silja Sóley Birgisdóttir, nýr oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík, segist vilja sjá öflugri borg og lifanlegri og að þjónustan höfði betur til fólksins. Hún segir að helstu stefnumál flokksins séu húsnæðismál en einnig að borgin byggi meira sjálf og komi þannig jafnvægi á húsnæðismarkaðinn.„Síðan eru það skólamálin, þau hafa verið mikið í umræðunni og það þarf að bæta starfsaðstæður fyrir starfsfólkið til að tækla af alvöru þessa manneklu og starfsmannaveltu,“ segir Silja Sóley sem telur að fjölga þurfi stöðugildum.„Það eru ágætar kröfur frá stéttarfélögunum og við eigum að hlusta á þau,“ segir hún.Aðspurð hvort borgin eigi fyrir slíku segir hún að skoða þurfi það betur.„Já, það þarf náttúrulega að fara í forgangsröðun eins og önnur verkefni borgarinnar. Það er hægt að finna pening en