Útsendarar Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) studdust við gamlar og í mörgum tilfellum löngu afsannaðar ásakanir um kosningasvindl í Georgíu í kosningunum 2020 þegar húsleit var nýverið gerð hjá kjörstjórn Fulton-sýslu. Rætur rannsóknarinnar má rekja til embættismanns í Hvíta húsi Donalds Trump sem hefur áður reynt að hjálpa forsetanum að snúa úrslitum kosninganna 2020, þegar Trump tapaði fyrir Joe Biden.