Finnska tónskáldið Kaija Saariaho fæddist í Helsinki árið 1952, en bjó lengi og starfaði í París og var eitt af merkustu tónskáldum seinni tíma. Hún dó árið 2023, sjötug að aldri. Saariaho samdi verk af ýmsu tagi og „Adriana Mater“ var önnur ópera hennar, frumsýnd í Bastilluóperunni í París árið 2006. Texti óperunnar er á frönsku og höfundur hans er Amin Maalouf, sem er fæddur í Líbanon 1949, en hefur búið í París frá árinu 1976. Maalouf er virtur rithöfundur og hefur meðal annars fengið Goncourt-verðlaunin frönsku fyrir skáldsögu sem kom út 1993. UPPHAF ÓPERUNNAR Óperan gerist í ótilgreindu landi. Það er farið að rökkva, Adríana, ung stúlka, stendur úti fyrir húsi sínu og syngur. Þegar hún ætlar inn kemur ungur maður að nafni Tsargo og fer í veg fyrir hana. Hann reynir að vingast við A