Öflug sprenging skaut Reyðfirðingum skelk í bringu í gærkvöld. Hús nötruðu og skjálfti kom fram á mælum. Íbúi segir kurteisi að láta fólk vita áður en sprengt sé í efnisnámu nærri útivistarsvæði.„Klukkan var nákvæmlega 18.31 samkvæmt jarðskjálftamælum. Þá erum við á göngu þarna og heyrum greinilega sprengingu. Við upplifðum hana talsvert nálægt okkur. Jörðin hristist og mikill kraftur í henni,“ segir Anna Berg Samúelsdóttir náttúru- og landfræðingur sem býr á Reyðarfirði. ÓTTUÐUST AÐ EITTHVAÐ HEFÐI KOMIÐ FYRIR Í ÁLVERINU Þau hafi ákveðið að haska sér í burtu eins og hún orðar það enda hafi gripið þau óhugur.„Hundurinn varð mjög hræddur. Fyrstu viðbrögð voru að það hefði eitthvað gerst úti í álveri og þá kom svona virkilega þungur óhugur í mann. Hvort það hefði orðið einhver sprenging þa