Evrópuþingið samþykkti í dag stuðningspakka Evrópusambandsins til Úkraínu – lán upp á 90 milljarða evra. 60 milljörðum verður varið til varna Úkraínu á þessu ári og því næsta. 30 milljarðar fara í að styðja við fjárhag ríkisins sem hefur liðið mikið síðan Rússland gerði allsherjarinnrás í landið fyrir rétt tæpum fjórum árum.Leiðtogaráð ESB samþykkti lánið fyrir sitt leyti í desember og framkvæmdastjórn sambandsins skilaði útfærslu í janúar.Tékkland, Slóvakía og Ungverjaland taka ekki þátt í lánveitingunni en hin 24 aðildarríkin eru með.Lánið er háð ýmsum skilyrðum, meðal annars því að lýðræði og réttarríkið verði í hávegum haft, staðið verði vörð um mannréttindi líkt og réttindi minnihlutahópa, og loks að haldið verði áfram að styrkja lýðræðislegar stofnanir landsins og barist verði gegn s