Það kom ýmsum á óvart þegar Gyrðir Elíasson tók sig til og opnaði myndlistarsýningu í Garði á Reykjanesi fyrir tæpum tveimur árum og sýndi þar hvorki meira né minna en 1200 myndverk. Gyrðir segir Reykjanesið hafa kynt undir myndlistarmanninum í sér, þótt hann hafi raunar lengi í sér blundað. Nýverið opnaði hann aðra einkasýningu sína, sem hann nefnir Í morgunbirtu, í Glerhúsinu við Vesturgötu í Reykjavík. Melkorka Ólafsdóttir ræddi við Gyrði um rit- og myndlistina í Víðsjá á Rás 1. MORGUNBIRTAN TÁKN FYRIR VONINA Þegar listamaðurinn er spurður um titil sýningarinnar segir hann: > Morgunbirtan. Ætli við getum ekki sagt að hún sé einhvers konar tákn fyrir vonina? Í mínum huga allavega. HUNDRAÐ MYNDIR Í LITLU RÝMI Myndirnar eru helst rauðar, gular og appelsínugular og nóg er af þeim á v