„Það var fullur salur af fólki, mikil samheldni á meðal íbúa, en sumir upplifðu þetta eins og ofbeldi, eins og að við gætum ekki treyst þessu fólki,“ segir Elísabet Gísladóttir, en borgarstjóri Reykjavíkur, Heiða Björg Hilmisdóttir, fundaði með reiðum íbúum Grafarvogs á miklum hitafundi í hverfinu mánudaginn 9. febrúar síðastliðinn ásamt starfsfólki borgarinnar. Samkvæmt lýsingum af fundinum kannaðist borgarstjórinn ekki...