Varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja hætti störfum eftir sextán ára starf sem slíkur á mánudag eftir að kvörtun hans til umboðsmanns Alþingis var til lykta leidd. Slökkviliðsstjóri segir starfslokin sameiginlega ákvörðun sem hafi verið tekin í „sátt og samlyndi“.