Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kalla ekki til matsmenn vegna varnargarða

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur fallið frá beiðni sinni um að matsmenn verði dómkvaddir til að meta hve miklum verðmætum varnargarðarnir við Grindavík og Svartsengi hafa bjargað.Í stað þess hefur Náttúruhamfaratrygging Íslands (NTÍ) boðist til að afla sérfræðiálits um gagnsemi varnargarðanna. Frá þessu segir á vef Stjórnarráðsins. Lagt verður mat á hvaða hagsmunum hafi verið bjargað með gerð þeirra og hvernig slík skipulögð forvörn geti dregið úr tjónskostnaði í hamförum af sama toga.Leitað verður til sérfræðinga hér á landi auk jarðvísindafræðinga af vettvangi alþjóðlegra endurtrygginga með sérfræðiþekkingu á áhættuútreikningum.Áætlaður kostnaður við varnargarðana er um ellefu milljarðar króna en áætlað er að þeir hafi bjargað verðmætum, mannvirkjum og rekstri fyrir mun meira fé.
Kalla ekki til matsmenn vegna varnargarða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta