Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Níu drepin í kanadískum smábæ — búið að bera kennsl á gerandann

Lögreglan í Kanada hefur borið kennsl á manneskju sem er talin hafa framið tvær skotárásir í kanadíska smábænum Tumbler Ridge í gær. Sjö voru drepin í gagnfræðaskóla og tvennt í heimahúsi.Ekkert hefur verið gefið upp um gerandann en í SMS-skilaboðum sem voru send á íbúa eftir að tilkynnt var um skotárásina var honum lýst sem konu í kjól og með brúnt hár.Klukkan var 13.20 að staðartíma í gær þegar lögregla fékk tilkynningu um skotárás í Tumbler Ridge-gagnfræðaskólanum.Þegar lögreglan kom á vettvang voru sex einstaklingar látnir og sjöunda fórnarlambið lést á leið á spítala. Þá fundust tveir einstaklingar látnir í heimahúsum og talið er að sama manneskja hafi verið að verki. Gerandinn svipti sig lífi og fannst látinn í skólanum.Tumbler Ridge er um 2.400 manna smábær um 1.100 kílómetra norður
Níu drepin í kanadískum smábæ — búið að bera kennsl á gerandann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta