Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði í gær kröfu íbúa í Rangárþingi ytra sem vildi að nefndin ógilti leyfisveitingu vegna breytinga á Miðgarði í Gunnarsholti. Breyta á húsinu til að koma þar upp meðferðarheimili fyrir fjórtán til átján ára drengi.Í húsinu voru áður höfuðstöðvar Landgræðslu Íslands og þarf að breyta því til að hægt sé að bjóða upp á langtímameðferð fyrir drengi sem lokið hafa greiningu og meðferð á Stuðlum í Reykjavík.Nágranni fyrirhugaðs meðferðarheimilis sagði að þarna yrði úrræði fyrir drengi sem glímdu við alvarlegan vanda á borð við vímuefnaneyslu, ofbeldi, afbrot, skóla- og námserfiðleika og sálfélagslegan vanda.Hann sagði að starfsemin félli ekki að þeirri stefnu sem sveitarfélagið hefði sjálft markað fyrir svæðið og að húsnæðið hentaði ekki undir starfs