Búast má við auknum umsvifum hersveita Atlantshafsbandalagsins, NATO, á norðurslóðum á næstunni en gert er ráð fyrir að svokölluð árvekniaðgerð, Arctic Sentry, verði tilkynnt á fundi varnarmálaráðherra NATO-ríkjanna í dag.Aðgerðin, sem kalla mætti „Varðstöðu á norðurslóðum“, á einkum að efla vöktun og eftirlit á svæðinu. Hún byggir á fyrirmynd úr Eystrasaltinu, Baltic Sentry, en þar eru herskip NATO sem vakta mikilvæga innviði með áherslu á sæstrengi, fylgjast með ferðum grunsamlegra skipa o.s.frv.Hvorugt verkefnið er tímabundið og Arctic Sentry er meðal annars talin viðbragð við ásælni Donalds Trumps í Grænland.Samkvæmt upplýsingum fréttastofu felur aðgerðin í sér aukna viðveru herskipa og eftirlitsflugvéla þótt ekki sé gert ráð fyrir að fjölga mannskap eða búnaði, frekar að nýta það betu