Karlmaður sem sætti rafrænu eftirliti lengur en hann hefði átt að gera vegna afplánunar dóms fær engar bætur úr hendi ríkisins. Hann fékk reynslulausn 34 dögum seinna en rétt hefði verið og fór fram á 3,4 milljónir króna í miskabætur en héraðsdómur taldi skilyrðum bótaskyldu um stórfellt gáleysi eða ásetning ekki uppfyllt.