Mikilvægt er að verkefni væntanlegs innviðafélags séu sett upp með þeim hætti að unnt sé að taka afstöðu til þátttöku í hverju og einu þeirra. Þetta er mat Landssamtaka lífeyrissjóða sem fram kemur í umsögn þeirra um drög að frumvarpi um innviðafélag en því er ætlað er að standa að uppbyggingu samgönguverkefna.