„Þegar við erum að berjast við skipulagða brotastarfsemi, þá verðum við að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi. Annars náum við ekki árangri,“ segir Kolbrún Benediktsdóttir, fulltrúi Íslands hjá Eurojust.24 voru handteknir í samræmdum aðgerðum Europol gegn skipulagðri glæpastarfsemi, þar af ellefu á Íslandi. Unnið hefur verið að rannsókninni í tæpt ár en hún teygir anga sína til Litháens og Spánar. Lögregla hefur notið aðstoðar Europol og Eurojust við rannsóknina.Kolbrún vonar að slík rannsóknarsamvinna hafi áhrif á fíkniefnaflutning til Íslands.„Við teljum okkur hérna vera að fara í þá sem standa á bak við og eru að skipuleggja innflutning fíkniefna til landsins. Vonandi hefur það, og ég hef trú á því að það hafi, einhver áhrif.“Saksóknarar frá yfir 40 ríkjum vinna saman hjá Eurojust. Boðlei