Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Dregur úr fordómum í garð geðsjúkdóma

Verulega hefur dregið úr fordómum í garð geðsjúkdóma á undanförnum áratugum. Þetta sýna niðurstöður rannsóknar á vegum Geðhjálpar sem kynnt var í dag. Í rannsókninni var meðal annars spurt út í viðhorf almennings til fólks með geðrænan vanda og þátttöku þeirra í samfélaginu.Árið 2006 töldu 29 prósent svarenda að fólk með þunglyndi ætti ekki að fá að gegna opinberum embættum. Hlutfallið var komið niður í 15 prósent fyrir fjórum árum og niður í 14 prósent í fyrra.Einnig var spurt um fólk með geðklofa. Þar er almennt meira um fordóma. Árið 2006 töldu 48 prósent að manneskja með geðklofa ætti ekki að fá að kenna börnum. Hlutfallið var komið niður í 36 prósent fyrir fjórum árum og 18 prósent í fyrra.Spurt var um fleiri atriði í rannsókninni og í öllum tilvikum dró úr fordómum í garð fólks með g
Dregur úr fordómum í garð geðsjúkdóma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta