Framtíð Bangladess ræðst eftir tvo daga þegar um 120 milljónir ganga til fjölmennustu kosninga ársins í heiminum. Það verður í fyrsta sinn sem kosið er í landinu eftir stúdentabyltinguna fyrir tveimur árum, þar sem öryggissveitir myrtu hundruð mótmælenda á götum úti.Þótt Sheikh Hasina hafi átt að erfa orðspor föður síns, frelsishetjunnar og landföðurins Sheikh Mujibur Rahman, stýrði hún landinu með harðri hendi. Ungt fólk í landinu fékk nóg og hrakti hana í útlegð eftir blóðug mótmæli. Við tók bráðabirgðastjórn sem boðaði til kosninga.Tveir eru líklegir til að taka við völdum. Tarique Rahman, frambjóðandi Þjóðarflokks Bangladess, er hægra megin við miðju og mælist yfirleitt með mest fylgi í skoðanakönnunum. Rétt á eftir honum er Shafiqur Rahman, sem fer fyrir Jamaat-e-Islami flokkabandalag