Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Leika til minningar um Patrek Frey

Innan stundar hefst íshokkíleikur Skautafélags Reykjavíkur og Fjölnis í toppdeild karla í Skautahöllinni í Laugardal. Leikurinn í kvöld verður leikinn til minningar um Patrek Frey Sveinsson, sem lést í bílslysi á Miklubraut í síðustu viku.Patrekur Freyr spilaði í undir 18 ára-liði SR en spilaði áður með Fjölni. Allur ágóði af leiknum í kvöld rennur til fjölskyldu Patreks.Hans verður meðal annars minnst í leikhléi og ætlar Hreimur Örn Heimisson söngvari að syngja. Þá hafa verið gerð sérstök vesti til minningar um Patrek sem liðsmenn ætla að klæðast.
Leika til minningar um Patrek Frey

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta