Stefán Sveinsson, tengslafulltrúi Íslands við Europol, segir tilefni til að hafa áhyggjur af því að eiturlyfjasmygl um hafnir Íslands færist í aukana. Þróunin hafi verið sú að dregið hafi úr umferð stórra eiturlyfjasendinga um stóru hafnirnar í Evrópu, eins og Rotterdam, Antwerpen og Hamborg, og hún fyrir vikið færst til minni hafna í Evrópu og í minna magni í einu.24 voru handteknir í samræmdum aðgerðum Europol gegn skipulagðri glæpastarfsemi, þar af ellefu á Íslandi. Unnið hefur verið að rannsókninni í tæpt ár en hún teygir anga sína til Litáens og Spánar. Lögregla hefur notið aðstoðar Europol og Eurojust við rannsóknina.Stefán segir aðkomu Europol að rannsókninni tvíþætta.„Það er annars vegar móttaka upplýsinga frá Íslandi og greina þær og sjá hvort við finnum tengsl við önnur lönd og h