Skóflustunga var tekin að nýju uppbyggingarverkefni við Hjallahraun í Hafnarfirði í dag sem felur í sér uppbyggingu 390 íbúða. Í fyrsta áfanga uppbyggingarinnar verða byggðar 177 íbúðir og þar af eru að minnsta kosti 60 íbúðir ætlaðar fyrstu kaupendum í gegnum hlutdeildarlán. Verkefnið hefur verið í bið en er nú farið af stað, í kjölfar fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar og breytingum á fyrirkomulagi hlutdeildarlána.„Breytingarnar sem við gerðum nýverið á hlutdeildarlánakerfinu gjörbreyta stöðunni. Með því að ríki, sveitarfélög og uppbyggingaraðilar gangi sameinuð til verks rjúfum við kyrrstöðuna og tryggjum framboð á íbúðum sem henta fyrstu kaupendum,“ er haft eftir Ragnari Þór Ingólfssyni, félags- og húsnæðismálaráðherra, í fréttatilkynningu um uppbygginguna.Ragnar Þór tók skóflustu